Sólveig og Steinunn til Century Aluminum

Sólveig, til vinstri, og Steinunn Dögg.
Sólveig, til vinstri, og Steinunn Dögg. Samsett mynd

Sólveig Kr. Bergmann og Steinunn Dögg Steinsen hafa tekið við nýjum hlutverkum hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls. Bætast þær í þann hóp Íslendinga sem þegar starfa í æðstu stjórn félagsins.

Sólveig, sem hefur gegnt stöðu yfirmanns samskipta hjá Norðuráli, fær núna starfstitilinn Corporate Director of Communications and Public Relations, að því er kemur fram í tilkynningu eða samskipta- og almannatengslastjóri.

Áður en Sólveig hóf störf hjá Norðuráli árið 2012 starfaði hún sem fréttastjóri, fréttamaður og blaðamaður á fjölda íslenskra fjölmiðla. Sólveig er með BA-gáðu í mannfræði og alþjóðafræðum frá Macalester College í Bandaríkjunum og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Sólveig er í stjórn Samáls og Grænvangs.

 Steinunn, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra umhverfis- og öryggissviðs Norðuráls frá árinu 2018, kemur til með að stjórna framvegis og bera ábyrgð á umhverfis- og öryggismálum allra álvera Century, bæði í Bandaríkjunum og hér heima. Nýr starfstitill hennar er Vice President of HSE, Sustainability and Management Systems.

Steinunn hóf störf hjá Norðuráli árið 2011. Hún er með M.Sc. í efnaverkfræði frá Denmarks Tekniske Universitet og lauk diplómanámi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2010.

„Það er mikið gleðiefni að fá þær Sólveigu og Steinunni til starfa í móðurfélaginu með mér. Steinunn mun stýra umhverfis- og öryggismálum í allri starfsemi Century á heimsvísu og vinna að því að tryggja að farið sé að öllum reglum á þessu sviði, auk þess að hafa umsjón með stefnu og stöðlum fyrirtækisins. Hún ber einnig ábyrgð á mótun, þróun, innleiðingu og endurbótum á umhverfis- og öryggisstefnu Century,“ segir Gunnar Guðlaugsson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Century Aluminum og forstjóri Norðuráls, í tilkynningunni.

„Sólveig verður yfirmaður allra samskipta samstæðunnar og stýrir stefnumótun á því sviði og mun halda áfram að stýra vörumerkjaþróun á vörum Century, útgáfum og birtingum, sem og ytri samskiptum Norðuráls á Íslandi,“ bætir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK