Ragnar ráðinn til Landsbankans

Ragnar Einarsson.
Ragnar Einarsson. Ljósmynd/Aðsend

Ragnar Einarsson hefur tekið við nýju starfi forstöðumanns færsluhirðingar Landsbankans en bankinn mun bjóða fyrirtækjum upp á færsluhirðingu á næsta ári, bæði í posum og á netinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. 

Þar segir, að Ragnar hafi mikla reynslu og þekkingu af færsluhirðingu en hann starfaði áður hjá færsluhirðinum Rapyd þar sem hann stýrði viðskiptasviði félagsins í gegnum mikið vaxtarferli. Hann var meðstofnandi og framkvæmdarstjóri íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins SalesCloud.

Áður stýrði Ragnar m.a. viðskipta- og vöruþróun hjá innlendri færsluhirðingu Borgunar. Hann kom líka að uppbyggingu fjártæknifyrirtækisins Aurs og sat um tíma í stjórn félagsins.

Ragnar er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK