Farsælt að sameina félögin

Ólafur Marteinsson og Einar Sigurðsson handsala sameininguna.
Ólafur Marteinsson og Einar Sigurðsson handsala sameininguna. mbl.is/Arnþór

Stjórnir Ísfélags Vestmannaeyja hf. og Ramma hf. í Fjallabyggð hafa skrifað undir samkomulag um samruna félaganna undir nafninu Ísfélagið hf.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins má ætla að núverandi eigendur Ísfélagsins muni eiga um 2/3 hluta í sameiginlegu félagi á móti núverandi eigendum Ramma.

Heildaraflahlutdeild sameinaðs félags verður tæplega 8% af úthlutuðu aflamarki. Samanlögð velta félaganna var um 28 milljarðar króna á árinu 2021.

Aðspurður segir Einar Sigurðsson, stjórnarmaður í Ísfélaginu, að óformlegar þreifingar hafi átt sér stað á undanförnum mánuðum. Hann segir að niðurstaðan hafi verið sú að farsælt væri að sameina félögin. Þá segir Einar að skrá eigi félagið á hlutabréfamarkað.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK