Helga María tekur við af Dagnýju hjá Sky Lagoon

Helga María Albertsdóttir nýr hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sky Lagoon.
Helga María Albertsdóttir nýr hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sky Lagoon. Ljósmynd/Aðsend

Helga María Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sky Lagoon frá og með mars næstkomandi. Hún hefur frá 2019 starfað sem framkvæmdastjóri Flyover Iceland.

Dagný Pétursdóttir, sem leitt hefur uppbyggingu Sky Lagoon á síðustu árum, hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri félagsins en mun sitja áfram í stjórn þess samkvæmt tilkynningu.

„Planið var ávallt að fylgja verkefninu áfram sem framkvæmdastjóri í tvö ár eftir opnun, enda er ég nú ekki að fara langt. Sem stjórnarkona mun ég halda áfram að styðja þétt við bakið á Helgu sem tekur við daglegum rekstri. Það er mikill fengur að fá Helgu Maríu til liðs við okkur,“ segir Dagný í tilkynningunni.

Sky Lagoon og FlyOver Iceland eru bæði í meirihlutaeigu Pursuit, félags sem rekur ferðaþjónustu um víða veröld. Pursuit er hluti samstæðu Viad, félags sem skráð er í kauphöllina í New York.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK