Ógilda kaupin á Gunnars

Gunnars hf. fær ekki að renna undir Kaupfélag Skagfirðinga.
Gunnars hf. fær ekki að renna undir Kaupfélag Skagfirðinga.

Samkeppniseftirlitið hefur ógilt kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Gunnars ehf., sem áður hét Gunnars majónes.

„Með kaupum KS á Gunnars hefðu runnið saman tveir af stærstu framleiðendum á majónesi og köldum sósum á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Fáir framleiða majones á Íslandi en helsti samkeppnisaðili félaganna er Kjarnavörur.

Bæri höfuð og herðar yfir aðra söluaðila majónes

Gunnars er eins og kunnugt er sterkt vörumerki í þessum vöruflokki og KS framleiðir og dreifir sömu vörutegundum undir merkjum E. Finnsson og eftir atvikum Vogabæjar, auk þess sem báðir aðilar framleiða þessar vörur einnig fyrir önnur fyrirtæki. Báðir aðilar selja sömu vörutegundir til dagvöruverslana og stórnotenda,“ segir þar enn fremur.

Samkeppniseftirlitið telur upp eftirfarandi þrjú atriði við samrunann sem hefðu haft alvarlegar afleiðingar fyrir samkeppni á markaði:

  1. Markaðsráðandi staða hefði orðið til á nánar tilgreindum mörkuðum fyrir hreint majónes og aðrar tilbúnar kaldar sósur sem skilgreindir eru nánar í ákvörðuninni. Eru fyrirtækin með mjög sterka stöðu á vörumörkuðum málsins. Þannig hefði sameinað fyrirtæki orðið stærsta fyrirtækið á viðkomandi mörkuðum og með umtalsverða yfirburði yfir helsta keppinaut sinn Kjarnavörur. Þá eru fáir framleiðendur að majónesi hérlendis og hefði þeim fækkað um einn vegna samrunans.
  2. Fyrirtækin eru nánir og mikilvægir keppinautar við framleiðslu og sölu á hreinu majónesi og tilbúnum köldum sósum. Með kaupum KS á Gunnars hefði því náinn og mikilvægur keppinautur horfið af sviðinu og þar með það samkeppnislega aðhald sem því fylgir. Aðgangshindranir eru auk þess til staðar sem hindra samkeppni og gera innkomu burðugs keppinautar eða stækkun keppinauta ólíklegri en ella. Þá vegur kaupendastyrkur fárra aðila á dagvörumarkaði ekki upp á móti skaðlegum áhrifum samrunans með fullnægjandi hætti.
  3. Skaðleg útilokunaráhrif og lóðrétt samþætting hefði aukist. Fyrir samrunann er Kaupfélag Skagfirðinga lóðrétt samþætt fyrirtæki með fjölþætta og víðfeðma starfsemi. Með samrunanum hefðu umsvif samstæðu Kaupfélagsins og lóðrétt samþætting þess aukist sömuleiðis. Í krafti aukinnar samþættingar og stöðu hins sameinaða fyrirtækis á aðliggjandi vörumörkuðum málsins hefði samruninn haft skaðleg útilokunaráhrif fyrir samkeppni á fráliggjandi mörkuðum, líkt og nánar greinir í ákvörðuninni.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK