Árni ráðinn framkvæmdastjóri ON

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Ljósmynd/Aðsend

Orka náttúrunnar hefur ráðið Árna Hrannar Haraldsson í starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1.maí.

Í tilkynningu frá ON segir að Árni búi yfir mikilli reynslu sem stjórnandi í íslenskum og alþjóðlegum fyrirtækjum síðustu tuttugu ár.

Árni hefur búið í Sviss frá árinu 2011 og síðustu ár starfað sem framkvæmdastjóri og borið ábyrgð á aðfangakeðju MSPharma sem er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með starfsemi víða um heim. Þá hefur Árni Hrannar einnig gegnt lykilhlutverkum hjá Xantis Pharma í Sviss, Actavis og 66° Norður.

Fari vel saman við vegferðina

„Árni Hrannar hefur mikla alþjóðlega reynslu sem yfirmaður í markaðsleiðandi lyfjafyrirtækjum,“ er haft eftir Helgu Jónsdóttur stjórnarformanni ON.

„Þá hefur hann yfirgripsmikla og fjölbreytta þekkingu á öllum sviðum virðiskeðjunnar hvort sem það eru innkaup, rekstur, framleiðsla eða stýring á flóknum aðfangakeðjuferlum sem dæmi. Þetta eru allt hlutir sem munu nýtast okkar fyrirtæki vel auk þess sem metnaður og sýn Árna Hrannars fer vel saman við þá vegferð sem Orka náttúrunnar er á.“

Tekið er fram að Árni sé fimmtugur, giftur með þrjú börn og alinn upp í Hafnarfirði þar sem hann gekk í grunnskóla og framhaldsskóla. Hann lauk B.SC. námi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og M.SC. gráðu í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) árið 2000.

Framleiðir og selur rafmagn

„Ég hlakka til að leiða öfluga starfsemi Orku náttúrunnar og halda áfram uppbyggingu fyrirtækisins á Íslandi. Að vinna í góðum hópi fólks að ábyrgri nýtingu auðlinda Íslands samfélaginu til góða er að mínu mati mikil forréttindi,“ er haft eftir Árna.

Í tilkynningunni segir að lokum að Orka náttúrunnar framleiði og selji rafmagn „á ábyrgan og umhverfisvænan hátt með það markmið að gæta hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina með sjálfbærni að leiðarljósi“.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK