Björgvin ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss

Björgvin ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss.
Björgvin ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss. Ljósmynd/Aðsend

Björgvin Jóhannesson hefur verið ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss.

Fram kemur í tilkynningu, að hann hafi víðtæka þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu sem hótelstjóri og stjórnandi.

„Björgvin var hótelstjóri Hótel Kötlu-Höfðabrekku frá 2004-2018, fjármálastjóri Efstadal 2 frá 2018-2022 og nú síðast var hann framkvæmdastjóri Ungmennafélags Selfoss.  Björgvin er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á ferðamálafræði frá Háskólanum á Akureyri og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.   

Það er mikill fengur fyrir Hótel Selfoss að fá Björgvin til starfa og er hann frábær viðbót við okkar öfluga hóp starfsmanna,“ segir í tilkynningu. 

„Ég er mjög spenntur að taka að mér að stýra þessu glæsilega hóteli. Hér er flottur hópur starfsfólks sem ég hlakka til að vinna með. Selfoss er stöðugt að verða meira aðdráttarafl ferðamanna, bæði innlendra og erlendra, sérstaklega með tilkomu miðbæjarins glæsilega. Hótelið er á besta stað í bænum til að taka á móti þessum ferðamönnum og það er tilhlökkun að sjá til þess að allir njóti dvalarinnar hjá okkur,“ er haft eftir Björgvin í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK