Íslandsbanki greiðir 12,3 milljarða í arð

Hluthafar tilgreindir í hlutaskrá bankans í lok arðsréttindadags eiga tilkall …
Hluthafar tilgreindir í hlutaskrá bankans í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs. Útborgunardagur verður 27. mars 2023. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á aðalfundi Íslandsbanka í dag var samþykkt að greiða út arð til hluthafa bankans sem nemur 12,3 milljörðum króna af hagnaði ársins 2022. Þetta jafngildir arði á hlut að fjárhæð 6,15 krónur.

Í fundargerð kemur fram að stjórn bankans geti boðað til sérstaks hluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga um greiðslu arðs af hagnaði fyrri rekstrarára eða endurkaup á eigin bréfum kunni að vera lögð fram.

Útborgunardagur verður 27. mars

Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf bankans án réttar til arðs, verður 17. mars. Arðsréttindadagur verður 20. mars.

Hluthafar tilgreindir í hlutaskrá bankans í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs. Útborgunardagur verður 27. mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK