Ingveldur Ásta ráðin í nýja stöðu hjá Reitum

Ingveldur Ásta Björnsdóttir.
Ingveldur Ásta Björnsdóttir.

Ingveldur Ásta Björnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Reitum. Um er að ræða nýtt svið innan Reita samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

Ingveldur Ásta lauk viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005 og meistaranámi í verkefnastjórnun árið 2014 frá sama skóla. Frá árinu 2009 – 2016 starfaði hún hjá Arion banka, m.a. við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og á fyrirtækjasviði sem viðskiptastjóri í sjávarútvegi. Frá 2016 hefur Ingveldur Ásta starfað við ráðgjöf mest í tengslum við sjávarútveg og ferðaþjónustu. Á árunum 2017 – 2021 starfaði hún sem verkefnastjóri á Íslandsstofu, á sviði útflutnings og fjárfestinga. Hún er stofnandi og eigandi Svörtulofta ehf. sem er í ferðaþjónustu á Vestfjörðum, og eigandi og framkvæmdastjóri félagsins North 65 ehf.

Í tilkynningunni kemur fram að Ingveldur Ásta mun mæta til starfa hjá Reitum í júní nk. og mun taka þátt í uppbyggingu og mótun hins nýja sviðs innan félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK