Reykjavíkurborg hættir við fyrirhugað skuldabréfaútboð

Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er erfið um þessar mundir.
Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er erfið um þessar mundir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hætta við fyrirhugað skuldabréfaútboð sem átti að fara fram á morgun, miðvikudaginn 12. apríl. Þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum sem borgin hættir við fyrirhugað skuldabréfaútboð.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar, sem send var eftir lokun markaða í dag, kemur fram að í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2023 sé áformað að taka lán fyrir allt að 21 milljarði króna að markaðsvirði, ýmist með útgáfu skuldabréfa á skuldabréfamarkaði, með beinni lántöku eða öðrum hætti.

Fram kemur í tilkynningunni að borgin hafi þegar selt skuldabréf fyrir um 4,1 milljarð króna og dregið þrjá milljarða króna á langtíma lánalínu hjá Íslandsbanka. Lántaka Reykjavíkurborgar það sem af er ári er þannig uppgefin um sjö milljarðar króna, eða um þriðjungur því sem áætlað er fyrir árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK