Kynna nýja kynslóð „snöggverslunar“

Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt í Noregi og á Íslandi. Breitt …
Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt í Noregi og á Íslandi. Breitt úrval vara og veitinga bjóðast heimsendar með lausnum fyrirtækisins. Árni Sæberg

Alþjóðlega sendifyrirtækið Wolt ætlar að bjóða þjónustu sína íslenskum viðskiptavinum frá og með vormánuðum. Fyrirtækið er um þessar mundir í óðaönn að semja við sendla, sem koma vörum og veitingum til viðskiptavina. Wolt álitur sig vera leiðandi í nýrri kynslóð verslunar sem kallast á frummálinu „Quick-Commerce,“ eða „snöggverslun“, sem er næsta skref í þróun vefverslunar. Í þessu felst að sendlar Wolt sækja vöruna úr næstu verslun og koma henni heim til viðskiptavinarins, stystu mögulegu leið.

Kemur á óvart

„Flestum kemur á óvart fjölbreytni þess úrvals sem við bjóðum. Við sendum allt frá venjulegum mat frá veitingastað, en einnig matvörur, og í raun allt sem þú getur hugsað þér að fáist í smásöluverslun,“ segir Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt í Noregi og á Íslandi, í samtali við ViðskiptaMoggann. Hún bendir jafnframt á að í Noregi séu unaðsvörur með vinsælli vöruflokkum, enda hentugt að fá þær vörur heimsendar, og þær berast hratt heim þegar kallið kemur.

Lestu ítarlegri umfjöllun í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK