100 milljarða velta í janúar og febrúar

Í mars síðastliðnum voru gistinætur á hótelum 423.423 samanborið við …
Í mars síðastliðnum voru gistinætur á hótelum 423.423 samanborið við tæplega 326 þúsund gistinætur í mars í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustunnar á Íslandi er um það bil 64% hærri fyrir tímabilið janúar til febrúar 2023 en fyrir sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í skammtímahagvísi ferðaþjónustu í maí á vef Hagstofunnar.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA að sögn Hagstofunnar. 

Frá janúar til febrúar 2023 var velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi tæplega 100 milljarðar króna samkvæmt viðisaukaskattskýrslum en það er um það vil 64% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var um 60,5 milljarðar króna. 

Í mars síðastliðnum voru gistinætur á hótelum 423.423 samanborið við tæplega 326 þúsund gistinætur í mars í fyrra. Þar af voru gistinætur erlendra gesta 35% fleiri en á sama tíma í fyrra eða 346 þúsund. Gistinæstur Íslendinga jukust einnig milli ára en aukningin nemur um 11% eða ríflega 77 þúsund milli ára. 

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.159 í mars 2023 sem er 18% aukning samanborið við mars 2022. Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2022 til mars 2023 störfuðu að jafnaði um 29.909 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 22.993 fyrir sama tímabil ári fyrr.

Í apríl voru 198.333 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 160.103 í apríl 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 142.180 samanborið við 102.228 í apríl í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK