Bónus opnar nýja verslun í Norðlingaholti

Bónus.
Bónus. Ljósmynd/Aðsend

Bónus opnaði nýja matvöruverslun klukkan 10 í morgun að Norðlingabraut 2 í Norðlingaholti.

Verslunin er rúmlega 1.800 fermetrar og er byggð á grænum grunni eins og allar nýjar og endurbættar Bónusverslanir. Notast er við íslenska CO2-kælimiðla fyrir kæli- og frystivélar en einnig eru led-lýsingar sem spara orku í allri versluninni bæði að innan og utan, ásamt orkusparandi frysti- og kælitækjum, að því er segir í tilkynningu.

„Við erum afar ánægð með nýju verslunina í Norðlingaholti og að fá að þjónusta þetta myndarlega hverfi sem er á jaðri Reykjavíkurborgar,” segir Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónuss, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK