Kaupmáttur allra nema ríkustu jókst

Kaupmáttur jókst um 1,6% árið 2022.
Kaupmáttur jókst um 1,6% árið 2022. Ljósmynd/Aðsend

Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst að jafnaði um 1,6% yfir allar tekjutíundir nema þá eftstu á árinu 2022. Var þetta niðurstaða greingar fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Aukin kaupmáttur var til staðar þrátt fyrir aukna verðbólgu á síðasta ári.


30% greiða 81% skattsins 

Þá segir að mikill meirihluti tekna ríkisjóðs komi frá efstu þremur tekjutíundunum eða um 81%. Tekjuhærri helmingur landsmanna greiðir um 82,5% allra álagðra gjalda. Neðri fimm tekjutíundirnar greiða samanlagt 13% af heildarútsvari og 4% af öllum tekjuskatti eða alls 17,5%. 

Greining ráðuneytisins er á álagningu opinberra gjalda eftir tekjutíundum út frá skattframtölum. Tekjutíund felst að búið er að skipta einstaklingum í tíu jafn stóra hópa þar sem sú fyrsta er með lægstu tekjurnar og sú tíunda með þær hæstu.

Rúmlega helmingur til sveitarfélaga 

Fram kemur að efsta tekjutíundin fær 28% af heildartekjum og greiðir um 35% af öllum sköttum. Þegar horft er eingöngu á hlutfall af heildarstofni tekjuskatts greiðir efsta tíundin 39%, 23% alls útsvars og 83% af öllum fjármagnstekjuskatti.

Rúmlega helmingur tekjuskatts eða 52% rann til sveitarfélaga em 81% tekjuskatts kom frá efstu þremur tíundunum. Tekjuskattur nam alls 585 milljörðum, en þar af renna 306 milljarðar í útsvar til sveitarfélaga. Eftir standa 279 milljarðar sem renna til ríkissjóðs.

Fleiri fá barnabætur 

Þá segir að „barnabætur hækkuðu og fleiri fjölskyldur fengu greiddar barnabætur
Viðmiðunarfjárhæðir barnabóta hækkuðu um 8% á milli tekjuáranna 2021 og 2022 og heildarfjárhæð útgreiddra barnabóta hækkaði um 4%. Fjölskyldur sem fengu greiddar barnabætur voru 55.842 og fjölgaði um 4.535 á milli ára.“

Ein upphæð með hverju barni 

„Um síðustu áramót urðu breytingar á barnabótakerfinu og það einfaldað. Tilgangur breytinganna var að fjölga þeim sem nytu stuðnings og draga úr skerðingum í kerfinu, auk þess sem jaðarskattar af völdum barnabóta lækka og skilvirkni og tímanleiki bótanna verður aukinn. Árið 2023 verður ein upphæð greidd með hverju barni, óháð fjölda barna, en áður var miðað við fjölda barna Skerðingarmörk tekna verða 4.750 þ.kr. (var 4.549 þ.kr.) hjá einstæðu foreldri og 9.500 þ.kr. (var 9.098 þ.kr.) hjá hjónum og sambúðarfólki. Skerðingarhlutföll eftir fjölda barna lækka og verða 4%, 6% og 8% óháð tekjum en voru áður 5,5%, 7,5% og 9,5% fyrir tekjur ofan tiltekinna marka,“ segir í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK