Orkulykillinn kominn í símann

Frá vinstri: Mimoza Róbertsdóttir verkefnastjóri Leikbreytis, Regína Jónsdóttir viðskiptastjóri Leikbreytis, …
Frá vinstri: Mimoza Róbertsdóttir verkefnastjóri Leikbreytis, Regína Jónsdóttir viðskiptastjóri Leikbreytis, Yngvi Tómason framkvæmdastjóri Leikbreytis, Guðmundur Ingi Þorsteinsson forstöðumaður þróunar hjá Orkunni, Auður Daníelsdóttir forstjóri Orkunnar og Birgitta Ósk Bates sem sér um þjónustumál Orkunnar.

Frá og með deginum í dag geta viðskiptavinir Orkunnar notað Orkulykilinn sinn beint í gegnum síma með Apple og Google Wallet.

Í tilkynningu frá Orkunni segir að Orkan sé fyrst orkusala til að taka upp þessa tækni. Þá segir að hún sé afrakstur samstarfs við fyrirtækið Leikbreyti sem unnið hefur að innleiðingu Orkunnar á „Gift to wallet“ kerfi Leikbreytis. Kerfið er byggt fyrir utanumhald, sölu og rekstur inneignarkorta, ásamt útgáfu Orkulykilsins í síma, eins og útskýrt er í tilkynningunni.

Þá kemur fram að helsti kostur þessarar þróunar sé að hægt verður að gefa út orkulykla og selja inneignarkort rafrænt að fullu án þess að viðskiptavinir þurfi að bæta við nýju smáforriti eða fá plast-lykil eða kort, þar sem kortin fara beint í Apple eða Google Wallet. „Gift to wallet“ kerfið geri Orkunni kleift að notast við umhverfisvænni lausn með því draga úr plastnotkun.

Hafa marga kosti

„Rafrænu kortin hafa marga kosti fyrir viðskiptavini, en sem dæmi má nefna þá opnast þau sjálfvirkt hjá korthöfum þegar ekið er inn á stöðvar. Í tilfelli inneignarkorta er hægt að sjá strax hversu mikið er eftir á kortinu,“ segir í tilkynningunni.

Orkulykillinn í símann varð aðgengilegur viðskiptavinum Orkunnar í dag en lausnin sem snýr að rafrænu inneignarkortunum verður tilbúin á næstu vikum.

Nýi búnaðurinn við sjálfsala Orkunnar.
Nýi búnaðurinn við sjálfsala Orkunnar.

„Við erum þakklát fyrir það traust sem Orkan sýnir Leikbreyti og lausn okkar, Gift to wallet, og það er afar ánægjulegt að vera í samstarfi við jafn framsækið félag og Orkuna. Þetta skref verður sannkallaður leikbreytir fyrir notendaupplifun viðskiptavina Orkunnar og mun auka ánægju þeirra til muna,“ segir Yngvi Tómasson, framkvæmdastjóri Leikbreytis í tilkynningunni.

„Við hjá Orkunni erum alltaf að leita leiða til að stytta viðskiptavinum okkar sporin og þetta er hluti af þeirri vegferð. Snjallsímar eru orðnir algengir til nota við greiðslu í posa og dælur og því gott fyrir viðskiptavini að vera með dælulykilinn líka í símanum. Með þessu drögum við einnig úr plastnotkun og getur viðskiptavinur fengið Orkulykilinn sinn strax án þess að þurfa t.d. að bíða eftir honum í pósti. Við erum virkilega ánægð með samstarfið við Leikbreyti enda tókst þeim að þróa fyrir okkur einfalda og snjalla lausn sem styður við stafræna vegferð Orkunnar,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar í tilkynningunni.


mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK