Veita heimild til samninga við Reiti

Fasteignafélögin Eik og Reitir leggja á ráðin um að undirrita …
Fasteignafélögin Eik og Reitir leggja á ráðin um að undirrita samrunasamning. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á hluthafafundi Eikar fasteignafélags í gær var tillaga stjórnar, um heimild til að undirrita samrunasamning við Reiti fasteignafélag, samþykkt með 83,88 prósentum atkvæða. Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum en tillagan, sem þar hlaut brautargengi, var svohljóðandi:

Hluthafafundur Eikar fasteignafélags hf. samþykkir að stjórn félagsins sé heimilt að gera samrunasamning við Reiti fasteignafélag hf. þar sem fram koma helstu skilmálar og forsendur samruna við Reiti fasteignafélag hf.

Að öðru leyti en greinir sérstaklega í samþykki þessu skal stjórn félagsins heimilt að semja um efni samrunasamningsins sem og samrunaáætlunar og annarra samrunagagna samkvæmt lögum um hlutafélög sem mynda skulu órjúfanlegan hluta samrunasamningsins.

Stjórn skal eingöngu heimilt að undirrita samrunagögn á grundvelli samrunasamningsins ef fyrir liggur að yfirtökutilboð Regins hf. í félagið hafi ekki verið samþykkt af tilskildum meirihluta hluthafa Eikar fasteignafélags hf.

Samþykki þetta víkur á engan hátt til hliðar skyldum félagsins til að leggja samrunann fyrir hluthafa til endanlegrar ákvörðunar í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög nr. 2/1995.

mbl.is
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK