Straumi-Burðarás slitið

ALMC varð til árið 2010.
ALMC varð til árið 2010. Morgunblaðið/Kristinn

Ákveðið hefur verið að slíta einkahlutafélaginu ALMC hf. Frá þessu er greint í Lögbirtingablaðinu.

Félagið hét áður Straumur-Burðarás, fjárfestingarbanki sem varð til árið 2005. Hann var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu í mars 2009. Í kjölfar samþykktar nauðasamninga í júlí 2010 varð eignaumsýslufélagið ALMC til.

Skorað er á alla þá sem telja til skulda eða annarra réttinda hjá félaginu eða telja til eigna í vörslu þess að lýsa kröfum sínum á hendur félaginu. Skilanefnd, lánardrottnar og hluthafar munu fjalla um kröfurnar á kröfuhafafundi 27. nóvember nk. 

Kröfulýsingar skulu sendar til BBA//Fjeldco, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Ath. Dagsetning kröfuhafafundar var röng í Lögbirtingablaðinu og fréttin hefur verið uppfærð með réttri dagsetningu.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK