Birna Hlín stýrir nýju sviði Arion banka

Birna Hlín Káradóttir leiðir nýtt svið innan Arion banka.
Birna Hlín Káradóttir leiðir nýtt svið innan Arion banka.

Birna Hlín Káradóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri reksturs og menningar sem er nýtt svið innan Arion banka. Birna hefur gegnt starfi yfirlögfræðings bankans frá árinu 2019.

Í tilkynningu segir að sviðið taki yfir ýmis verkefni sem áður tilheyrðu öðrum sviðum auk þess sem nýtt umbreytingarteymi verður hluti af sviðinu. Markmið breytinganna er samkvæmt tilkynningunni aukið samstarf stoðsviða, aukin skilvirkni í rekstri, markviss stýring umbreytingarverkefna og enn skýrari fókus á þjónustu og upplifun viðskiptavina.

Auk þess mun sviðið gegna hlutverki í áframhaldandi þróun og mótun fyrirtækjamenningar Arion banka. Undir rekstur og menningu falla mannauður, viðskiptaumsjón, rekstrarumsjón, umbreytingar og lögfræðiþjónusta.

Yfirlögfræðingur frá 2019

Í tilkynningunni segir að Birna Hlín hafi mikla reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur gegnt starfi yfirlögfræðings hjá Fossum mörkuðum, Straumi fjárfestingarbanka og Straumi-Burðarás fjárfestingabanka auk Arion banka.

Hún hefur kennt lög um fjármálamarkaði o.fl. í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands, setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og félagasamtaka hérlendis og erlendis. Birna Hlín er með AMP-gráðu frá IESE Business School í Barcelona og lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með málflutningsréttindi og próf í verðbréfaviðskiptum.

mbl.is
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK