Friðrik Ársælsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka og er um nýja stöðu að ræða innan bankans. Lögfræðiráðgjöf heyrir undir nýjasta svið bankans, rekstur og menningu.
Friðrik hefur starfað í lögfræðiráðgjöf Arion banka frá árinu 2019, síðast sem aðstoðaryfirlögfræðingur. Þar áður var Friðrik eigandi á lögmannsstofunni Réttur og sat í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum 2014-2019. Hann er aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands og hefur m.a. annast kennslu í félagarétti, fjármálamarkaðsrétti og verið leiðbeinandi fjölda meistararitgerða við skólann. Friðrik er með meistaragráðu í félaga- og verðbréfamarkaðsrétti frá Harvard Law School og lögfræðigráðu frá Háskóla Íslands, að því er segir í tilkynningu.