Gamestöðin gjaldþrota

Hallbjörn Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Gamestöðvarinna, í Kringlunni.
Hallbjörn Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Gamestöðvarinna, í Kringlunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gjaldþrotaskiptum á félaginu Gamestöðin ehf., sem rak samnefnda tölvuleikjaverslun í Kringlunni, er lokið.

Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Á síðasta ári skellti verslunin í lás og ætlaði að færa sig alfarið yfir í netverslun. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta í apríl.

Líktist stórum skiptimarkaði

Í samtali við mbl.is á sínum tíma sagði Hall­björn Sig­urður Guðjóns­son, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi Gamestöðvar­inn­ar, að minnk­andi sala í versl­un­inni sjálfri hafi orðið til þess að loka þurfti versl­un­inni.

Verslunin opnaði sumarið 2008 í Skeifunni og bauð upp á þjónustu sem margar aðrar verslanir gerðu ekki, en Gamestöðinni mátti líkja við stóran skiptimarkað.

Hallbjörn sagði s­amkeppnina í tölvu­leikja­heim­in­um mikla og að Gamestöðin keppti við all­ar versl­an­ir leikja­fyr­ir­tækj­anna sem geta oft boðið upp á verð sem Gamestöðin á erfitt með að bjóða upp á.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK