Japanska Nikkei 225-vísitalan hefur rokið upp um 10,23% í dag eftir að hafa tekið skyndilega kollsteypu niður um 12% í gær. Auk þess hækkaði Topix-vísitalan um 9,3%.
Allsherjar uppþot greip um sig á japönskum hlutabréfamörkuðum í gær eftir að japanska Nikkei 225-vísitalan lækkaði um rúmlega 12%, en það er ein mesta lækkun síðan hrun varð á verðbréfamörkuðum í kringum „svarta mánudaginn“ árið 1987.
Lækkunin hafði keðjuverkandi áhrif, sem breiddust í raun um heim allan en töluverðar lækkanir á öllum helstu hlutabréfavísitölum blöstu því við þegar kauphallir opnuðu í Evrópu og Bandaríkjunum í gær.
Í fyrstu viðskiptum á bandarískum mörkuðum tók japanska jenið stökk á móti bandaríkjadal, en Nasdaq-vísitalan féll hins vegar um meira en 3% og sömuleiðis féllu S&P 500 og Dow Jones-vísitölurnar báðar um meira en 2%.
Síðan þá hefur S&P 500 hækkað um 1% að nýju og Kospi-vísitalan í Suður-Kóreu, sem lækkaði einnig mikið samhliða kafhlaupi Nikkei, hefur nú hækkað um 3%.
Markaðir opna í Bandaríkjunum á um kl. 13.30 í dag að íslenskum tíma.