Hæstiréttur samþykkti í gær, þriðjudag, beiðni Samskipa um áfrýjunarleyfi vegna dóms sem féll í Landsrétti í september sl. þar sem Samkeppniseftirlitið (SKE) var sýknað af kröfum Samskipa.
Samskip höfðu krafist þess fyrir dómstólum að úrskurður áfrýjunarnefndar SKE um að vísa frá kæru Samskipa yrði ógiltur.
Samskip höfðu kært sátt til áfrýjunarnefndarinnar sem Eimskip gerðu við SKE 16. júní 2021, þar sem síðarnefnda félagið gekkst við því að hafa átt í samráði við Samskip, greiddi sektir og skuldbatt sig til þess að hætta öllu viðskiptalegu samstarfi við Samskip. Samskip kröfðust þess að umrædd skilyrði um að skipafélögin hættu viðskiptalegu sambandi yrðu felld úr gildi.
Héraðsdómur hafði fellt úrskurð áfrýjunarnefndarinnar úr gildi og taldi að Samskip gætu borið gildi sáttarinnar undir áfrýjunarnefndina.
Landsréttur komst aftur á móti að þeirri niðurstöðu að aðili að samráðsmáli sem ekki hefði viðurkennt samkeppnisbrot sem til rannsóknar hefði verið, eins og ætti við um Samskip, gæti ekki talist aðili að sátt annars aðila sem hefði viðurkennt slíkt brot.
Hæstiréttur telur dóm í málinu geta haft fordæmisgildi og samþykkti því, eins og áður segir, beiðni Samskipa um áfrýjunarleyfi.