Viðskiptaráð Íslands lagði nýverið fram 60 hagræðingartillögur sem samanlagt skila 122 milljarða króna árlegri hagræðingu í rekstri ríkissjóðs. Í viðskiptahluta Dagmála er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs.
Ein af tillögunum var að hækkun hámarksþaks á greiðslur úr fæðingarorlofssjóði yrði dregin til baka.
Gunnar segir að Viðskiptaráð leggi til að stjórnvöld dragi til baka öll þau útgjöld sem stofnað var til í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í haust.
„Þetta eru 14 milljarða útgjöld sem ríkisstjórnin stofnaði til. Þetta eru ófjármögnuð útgjöld þannig þetta eru peningar sem eru ekki til. Þetta var gert á þeim tíma sem verðbólga var ekki farin að lækka og þetta eykur verðbólguþrýsting," segir Gunnar.
Hann bætir við að um hafi verið að ræða óeðlilega samþættingu stjórnvaldsaðgerða inn í samninga milli aðila vinnumarkaðarins.
„Við viljum benda á að ef stjórnvöld sem vilja stofna til útgjalda þá á að gera það óháð því hvort það sé upplausn á almennum vinnumarkaði eða ekki. Það er óeðlilegt að þætta þetta saman með þessum hætti," segir Gunnar.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: