Allir eignaflokkar í fjárfestingastarfsemi Sjóvá skiluðu jákvæðri afkomu fyrir utan óskráð hlutabréf þar sem stærsta einstaka breytingin var á virði eignarhlutar í Controlant sem var færður niður um 77% á árinu eða um 675 milljónir króna. Hluturinn í Controlant var bókfærður á genginu 24.
Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá sagði á uppgjörsfundinum að Sjóvá hafi komið á framfæri andmælum á hluthafafundi Controlant þess efnis að upplýsingar frá stjórnendum Controlant hafi ekki reynst réttar.
Hagnaður síðasta árs hjá Sjóvá nam 4.241 milljónum króna og arðsemi eiginfjár var 17,5%.
Afkoma ársins 2024 af vátryggingasamningum fyrir skatta nam 1.283 milljónum króna og samsett hlutfall var 96,2%. Tekjuvöxtur nam 7,4% sem var í takt við áætlanir félagsins en minni en síðustu ár.
Í uppgjörinu segir að hafa verði í huga að markaðshlutdeild hafi aukist mikið undanfarin ár með heilbrigðum vexti. Áfram verður lögð áhersla á arðbæran og ábyrgan tryggingarekstur með framúrskarandi þjónustu en vöxtur er gjarnan afleiðing þess eins og hefur verið í tilfelli Sjóvá, segir í uppgjörinu.
Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 3.435 milljónum króna og var ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu 9,4% á árinu.
Haft er eftir Hermanni Björnssyni forstjóra Sjóvá í uppgjörinu að það sé í samræmi við væntingar í upphafi árs en er ánægjulegt í ljósi erfiðra eignamarkaða langt framan af ári bæði á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði. Markaðir tóku við sér á haustmánuðum með lækkandi verðbólgu og væntingum um að vaxtalækkunarferli gæti hafist sem svo varð raunin.
„Á árinu 2025 munum við hér eftir sem hingað til leggja áherslu á arðbæran og ábyrgan vátryggingarekstur. Saga okkar í 10 ár sem skráð félag í Kauphöll hefur sýnt að við höfum staðið undir okkar höfuðáherslu um að vera öflugt arðgreiðslufélag sem byggir á öguðum grunnrekstri, þar sem vátryggingar eru okkar fag. Horfur fyrir árið 2025 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði á bilinu 1.700 – 2.400 m.kr. og samsett hlutfall 93 - 95%. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni. Þá má ætla að áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar verði neikvæð um 1.500 m.kr. miðað við óbreytt vaxtastig og stærð vátryggingaskuldarinnar. Við gerð áætlunar er stuðst við ýmis opinber gögn, t.d. spár um þróun vísitalna, hagvöxt og áætlaðan ferðamannafjölda. Þá er litið til tjónaþróunar undanfarinna ára auk þess sem áætlað er fyrir tveimur til þremur stórtjónum á árinu," er haft eftir Hermanni í uppgjörstilkynningu.
Í uppgjörstilkynningu kemur fram að arðgreiðslustefna félagsins miði við að greiða að lágmarki 50% af hagnaði hvers árs til hluthafa í formi arð að teknu tilliti til gjaldþols. Samþykkt var á stjórnarfundi í dag að leggja til við hluthafafund að greiða út arð að fjárhæð 3.400 milljónir króna eða 2,94 kr. á hlut.
Fjármálaeftirlitið hefur veitt félaginu heimild til endurkaupa á eigin bréfum á árinu 2025 sem byggir á heimild aðalfundar Sjóvár 7. mars sl. Endurkaup munu sem fyrr taka mið af gjaldþolsviðmiðum stjórnar.