Hafa takmarkaða trú á stöðugleikareglunni

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í síðustu viku að stýrivextir yrðu lækkaðir um 50 punkta og standa þeir því nú í 8%. Gestir í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna voru þeir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka og Valdimar Ármann, fjárfestingarstjóri Arctica sjóða. Í þættinum var rætt um vaxtaákvörðunina, óvissuna í alþjóðlegum efnahagsmálum og efnahagshorfur hérlendis.

Talið barst að efnahagsstefnu nýrrar ríkisstjórnar. Jón Bjarki og Valdimar benda báðir á það ósamræmi sem liggur í því að boða hvort í senn hagræðingu og aukin útgjöld.

Spurður hvernig áform nýrrar ríkisstjórnar um að innleiða stöðugleikareglu horfi við þeim segir Valdimar að hann hafi takmarkaða trú á þeim áformum.

„Það er oft talað um reglur og þak og annað slíkt. Við erum til dæmis með skuldahámark í Bandaríkjunum en það er ekki til annars en að vera hækkað þegar menn rekast í það. Þannig að það er fínt mál að innleiða stöðugleikareglu en væri bara frábært að sjá henni framfylgt,“ segir Valdimar.

Jón Bjarki tekur undir og bætir við að áhugavert verði að sjá fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem lítur dagsins ljós í vor.

„Síðustu ríkisstjórnir hafa gert gott mót þrátt fyrir allt að halda sig við þessar reglur. Það er alltaf álitamál hversu oft á að víkja frá þessum reglum líkt og gert var í faraldrinum. Það verður að passa að undantekningin verði ekki reglan í þessum efnum,“ segir Jón Bjarki.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér:

Valdimar Ármann og Jón Bjarki voru gestir Magdalenu í Dagmálum.
Valdimar Ármann og Jón Bjarki voru gestir Magdalenu í Dagmálum. mbl.is/Kristófer Liljar
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK