Landsbankinn birti í dag nýja hagspá sem nær til ársins 2027. Spáð er hægfara hagvexti næstu ár, en einnig þrálátri verðbólgu og töluverðri óvissu í alþjóðaviðskiptum.
Samkvæmt spánni verður hagvöxtur 1,4% í ár og nær 2,3% árið 2027. Vöxturinn verður einkum drifinn áfram af einkaneyslu, fjárfestingu og auknum útflutningi, meðal annars á lyfjum og eldisfiski.
Verðbólga hefur dregist saman frá hámarki í fyrra en er spáð óbreytt við árslok 2025, í 3,8%. Hún verður 3% í lok 2027. Stýrivextir lækka smám saman á tímabilinu í 5%.
Á íbúðamarkaði er spáð hóflegum verðhækkunum og dregið hefur úr spennu. Atvinnuleysi nær hámarki í ár, 3,8%, en lækkar að nýju síðar á tímabilinu.
Tollar í Bandaríkjunum og möguleg verndarstefna gætu haft áhrif á útflutning og ferðaþjónustu. Ísland er þó í lægsta tollaflokki og lyf eru undanþegin tollum.
Þrátt fyrir væntanlegan afgang í vöru- og þjónustujöfnuði er spáð halla á viðskiptajöfnuði allt spátímabilið.
Greiningardeild bankans bendir á að þótt efnahagurinn standi traustum fótum, geti sveiflur í alþjóðlegu umhverfi haft áhrif á þróun næstu ára.