Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,77% á milli mánaða í apríl og að ársverðbólga hækki úr 3,8% í 4,0%.
Bankinn gerir hins vegar ekki ráð fyrir auknum verðbólguþrýstingi, heldur skýrist hækkunin frekar af því að páskarnir voru fyrr á ferðinni í fyrra og höfðu áhrif á flugfargjöld bæði í mars og apríl, en í ár gerum við ráð fyrir að páskaáhrifin á flugfargjöld komi öll fram nú í apríl.
Janúarútsölur á fötum og skóm hafa dregist lengur en áður og er verð á þessum vörum enn lægra en það var fyrir útsölurnar. Í greiningu bankans er gert ráð fyrir því að útsöluáhrifin gangi nú að fullu til baka og að verðbólga lækki aftur í maí og mælist þá 3,7%.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá greiningardeild Landsbankans.