Google fjárfestir í jarðhita

Kristín Vala er tæknistjóri Baseload Capital Sweden
Kristín Vala er tæknistjóri Baseload Capital Sweden Ljósmynd/Aðsend

Bandaríski tæknirisinn Google hefur skrifað undir sögulegan orkusölusamning við sænska fjárfestingarfélagið Baseload Capital um nýtingu jarðhita í Taívan – fyrsta samning sinnar tegundar sem Google gerir í landinu. Um leið hefur Google fjárfest í Base­load Capital, sem er móðurfélag íslenska jarðhitafyrirtækisins Baseload Power Iceland.

Samstarfið miðar að framleiðslu á 10 megavöttum af endurnýjan­legri orku fyrir gagnaver og starfsemi Google í Taívan og er markmiðið að hefja rekstur árið 2029. Um leið tvöfaldast jarðhitaframleiðsla í landinu.

Baseload Power Iceland hefur starfað hér á landi frá 2018 og sérhæfir sig í nýtingu lág- og meðal­hita á svæðum sem hingað til hafa verið vannýtt. Félagið hefur byggt upp verðmæta þekkingu og tækni á sviði jarðhita, sem nú nýtist í alþjóðlegum verkefnum. Með aukinni eftirspurn eftir kolefnishlutlausri grunnorku eru lausnir af þessu tagi orðnar lykil­atriði í orkuskiptum stórfyrir­tækja á heimsvísu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK