Ákveðin hjarðhegðun í gangi á markaðnum

Hermann Björnsson forstjóri Sjóvár segir að í tísku sé að …
Hermann Björnsson forstjóri Sjóvár segir að í tísku sé að sameina ólík félög. Eggert Jóhannesson

Hermann Björnsson forstjóri Sjóvár segir að ákveðin hjarðhegðun virðist vera í gangi á markaðnum. Nú sé greinilega enn og aftur í tísku að sameina banka og tryggingafélög.

Sjóvá er eina stóra tryggingafélagið á Íslandi í dag sem ekki er í eigu banka eða er í nánu samstarfi við slík fyrirtæki. „Síðustu ár höfum við oft verið spurð að því á afkomukynningum okkar hvort við ætlum ekki að huga að einhverri sameiningu,“ segir Hermann og bætir við að engin áform séu um slíkt.

Ef litið er í baksýnisspegilinn voru á sínum tíma Landsbankinn og Vátryggingafélag Íslands, VÍS, í einni sæng. Það sama átti við um Íslandsbanka og Sjóvá. Þá voru Kvika og Tryggingamiðstöðin, TM, sameinuð árið 2020 þar til TM var selt til Landsbankans á síðasta ári.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK