Of mikil skýrslugerð

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Rætt var um framtíð og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, ársfund SFF sem haldinn var á dögunum og ýmislegt fleira.

Spurð hvaða reglum þyrfti helst að breyta segir Heiðrún að of mikil áhersla sé á skýrslugerð.

„Það er mjög mikil skýrslugerð sem bankarnir verða að framkvæma. Það er alltaf verið að auka í þær. Og ekki gleyma því að á hinum endanum eru eftirlitsaðilar að taka á móti þeim, þannig að þetta býr til mikið óhagræði þar,“ segir Heiðrún.

Hún nefnir að einnig sé á margan hátt of langt gengið í reglum er varða sjálfbærni.

Ég held að minnsta kosti að flestir í atvinnulífinu séu sammála því að það er verið að ganga full langt í upplýsingagjöf á því sviði sérstaklega,“ segir Heiðrún.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér:

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK