Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Rætt var um framtíð og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, ársfund SFF sem haldinn var á dögunum og ýmislegt fleira.
Á fundi samtakanna skapaðist umræða um að Evrópa hefði regluvætt sig úr samkeppni við Ameríku og Asíu. Spurð út í það segir Heiðrún að það sem við getum helst gert hér á landi sé að sporna gegn gullhúðun. Evrópa þurfi svo að endurskoða strangar reglur.
„Við vonum að Evrópa taki sig til og raunverulega fari aðeins að spóla til baka. Að þessu sögðu vil ég að taka fram að auðvitað viljum við hafa góðar reglur og viljum hafa gott eftirlit hérna. Það er þó hægt að fara með allt út í öfgar,“ segir Heiðrún.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: