Hampiðjan greiddi rúma þrjá milljarða króna við kaup á meirihluta í indverska neta- og kaðlaframleiðandanum Kohinoor. Upphæðin er á svipuðum nótum og áætlað kaupverð sem lagt var upp með.
Fyrirtækið færir nú stóran hluta framleiðslu sinnar til Indlands og vinnur nú að kaupum á landi þar til frekari uppbyggingar. Stefnt er að byrja byggingaframkvæmdir í vor en auk þess á Kohinoor þegar 60 þúsund fermetra verksmiðju á Indlandi.
Hinn 7. febrúar í ár var tilkynnt að Hampiðjan ehf. hefði fest kaup á fest kaup á 75,1% hlut í félaginu Kohinoor Ropes Pvt. Ltd, sem er meðal stærstu kaðlaframleiðenda Indlands. Á Indlandi telst 75% sem ráðandi meirihluti, en á Íslandi er miðað við tvo þriðjunga.
Í kauphallartilkynningu segir að allir fyrirvarar vegna kaupanna séu uppfylltir. Greiðslan hafi numið 21,7 milljónum evra – sem nemur 3,15 milljörðum króna. Forsendur fyrir uppgjöri verði síðan staðfestar og kaupverðið aðlagað, en ekki sé búist við að kaupverðið breytist mikið.
Í kaupsamningunum eru tvö rekstrarafkomuviðmið sem skila seljendum aukagreiðslum ef þau nást. Ef EBITDA sem nemur 4,45 m. evra næst á indverska rekstrarárinu 2024-25, sem lauk 31. mars, kemur til viðbótargreiðsla sem nemur 2 m. evra. Það kemur ekki í ljós fyrr en við endurskoðun uppgjörsins. Endanlegt kaupverð gæti því orðið 25,8 m. evra (7,75 m.kr) ef EBITDA hefur náð 5,52 m. evra.
Fyrirtækið hyggst byggja allt að 70.000 m² verksmiðju í Auric, 20 km frá Aurangabad og stefnir á að færa stóran hluta framleiðslu sinnar úr Evrópu til Indlands en fyrirtækið á félög víða í Evrópu; Mørenot í Danmörku og Noregi og Hambiðjuna Baltic í Litháen.
Þessum breytingum fylgir mikil hagræðing vegna hagstæðara starfsumhverfis á Indlandi, segir í tilkynningunni.