Sérstakur viðburður í Reykjavík á vegum króatíska fyrirtækisins Resonate færir saman bandaríska stafræna sérfræðinginn Paul Weaver og leiðtoga úr íslensku atvinnulífi til að takast á við áskoranir stafrænnar umbreytingar. Resonate er hönnunar-og ráðgjafafyrirtæki frá Króatíu sem sérhæfir sig í stafrænum umbreytingum og hefur unnið með fjölda íslenskra fyrirtækja frá árinu 2019. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Resonate stendur fyrir umræðum um stafræna forystu í Reykjavík. Fyrir sex árum hóf fyrirtækið að halda reglulega hittinga um notendamiðaða hönnun. Síðan þá hafa viðburðirnir vaxið bæði að umfangi og áhrifum. Í september síðastliðnum var uppseldur pallborðsfundur um vöxt fyrirtækja og alþjóðavæðingu haldinn í Sykursalnum, sem sýndi skýra þörf fyrir stefnumiðað samtal í íslenska tækni- og viðskipta samfélaginu.
Fyrirtæki sem setja stafræna hugsun í forgang hafa endurskilgreint hraða, sveigjanleika og viðskipta upplifun – og skilið hefðbundin fyrirtæki eftir í kapphlaupi um að ná fótfestu. En breytinga þróunin er hafin. Þann 7. maí 2025 mun Resonate halda viðburðinn Enterprise Innovation – Að keppa og vinna í stafrænum heimi, spennandi samkoma fyrir leiðtoga sem eru tilbúnir að stíga djörf skref í stafrænni umbreytingu.
Aðalræðumaður viðburðarins verður Paul Weaver, varaforseti stafrænnar hönnunar hjá Hyatt Group. Weaver hefur áratuga reynslu frá alþjóðlegum risum eins og Disney, Rosetta Stone og Oracle Cerner, og mun miðla reynslu sinni af því að leiða stafrænar nýjungar innan flókinna skipulagsheilda.
Í kjölfarið fer fram kraftmikil pallborðsumræða með þátttöku eftirfarandi sérfræðinga:
Guðrún Aðalsteinsdóttir, forstjóri Krónunnar
Þórir Ólafsson, forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Icelandair
Andri Heiðar Kristinsson, meðeigandi hjá Frumtak (áður hjá LinkedIn og forstjóri Stafræns Íslands)
Davor Culjak, stofnandi og meðeigandi Resonate
Umræðunni stýrir Vilhjálmur Alvar Halldórsson, ráðgjafi í stafrænni umbreytingu hjá Expectus Consulting
Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður framkvæmdastjórum og stjórnendum í upplýsingatækni, nýsköpun og vöruþróun – öllum þeim sem leiða umbreytingu í stórum fyrirtækjum þar sem notendamiðuð nálgun og skýr stafræn stefna skilar áþreifanlegum árangri.
„Fyrirtæki sem tileinka sér stafræna hugsun hafa hækkað kröfurnar – þau skara fram úr í hraða, aðlögunarhæfni og upplifun viðskiptavina. Hefðbundin fyrirtæki þurfa nú að svara kallinu. Leiðtogar um allan heim eru að taka höndum saman til að takast á við samkeppni, síbreytilegar væntingar og stöðugar truflanir – með því að brjóta niður múra, afnema úreltar hugmyndir og einfalda flókin ferli. Þessi viðburður er tækifæri til að stíga út fyrir tísku hugtök og ræða raunveruleikann. Við heyrum frá framsæknustu fyrirtækjum Íslands og stafrænum leiðtogum þeirra – hvernig þau hafa sameinast um djörf markmið, nýtt innsýn notenda og skilað mælanlegum árangri. Engar kenningar, engin glansmynd – bara hreinskilin reynsla, hagnýtar aðferðir og lærdómar úr raunveruleikanum. Ef þú ætlar að leiða í stafrænum heimi, þá hefst samtalið hér," er haft eftir Davor Culjak, stofnanda og meðeiganda Resonate í fréttatilkynningu.
Skráning fer fram á Facebook síðu eða LinkedIn síðu viðburðarins.