Um 50% af regluverki gullhúðað

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF), var gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Rætt var um framtíð og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, ársfund SFF sem haldinn var á dögunum og ýmislegt fleira.

Spurð hvað íslensk stjórnvöld geti gert til bæta rekstrarumvherfi fjármálafyrirtækja bendir Heiðrún á nauðsyn þess að draga úr gulllhúðum. Hún bendir á meistararitgerð sem var skrifuð af Margréti Eiríksdóttur, doktor í Háskólanum í Reykjavík, en þar kom fram að rétt um fimmtíu prósent af regluverki á fjármálamarkaði væri gullhúðað með einum eða öðrum hætti.

Þetta kannski hljómar hátt og þetta er náttúrulega ekki gott, en auðvitað er þetta ekki þannig að allar þessar gullhúðanir séu eitthvað stórfenglegar. Sumar þeirra eru smávægilegar, en það er allt til tekið og þú veist, þá finnst manni ekki ástæða til þess að vera að flækja þetta enn frekar og ég held bara að kannski megi fara í þessa vinnu með öðrum hætti. Við höfum hins vegar ekki séð mikið af því að það hafi verið að draga úr þessu í raun, að minnsta kosti ekki svona sem ég man eftir í fljótu bragði. En vonandi er Evrópa að koma til baka af því að flestar þær reglur eru náttúrlega til komnar frá Evrópu," segir Heiðrún.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK