„Arðsemi í greininni ekki meiri en í öðrum"

Gest­ur í viðskipta­hluta Dag­mála þessa vik­una er Heiðrún Lind Marteins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Jakobsson Capital vann greiningu fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi á skráðu sjávarútvegsfélögunum í Kauphöll; Ísfélaginu, Síldarvinnslunni og Brim. Spurð út í niðurstöður greiningarinnar segir Heiðrún að niðurstöðurnar séu í takt við það sem SFS hefur haldið fram

„Afkoma og arðsemi í sjávarútvegi er ekki meiri en í öðrum atvinnugreinum og jafnvel minni. Ef að af þessum áformum verður, þá mun það vera högg í afkomu og auðvitað markaðsvirði þessara þriggja félaga. Jakobsson Capital metur það að markaðsvirðið muni lækka um einhverja fimmtíu og þrjá milljarða króna hjá þessum þremur félögum. Og ávöxtun verði  kannski kringum 7,9%. Það er bara á pari kannski við ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Og þetta er auðvitað áhyggjuefni vegna þess að þetta er líka samkeppni um fjármagn," segir Heiðrún og bætir við að gott hafi verið að fá þessa greiningu Jakobsson Capital fram.

Og aftur þá vonar maður bara að það verði dýpri og meiri umræða um nákvæmlega þetta," segir Heiðrún.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér:

https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/vidskipti/258112/?_t=1745655774.8692963

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK