Svipmynd: Skortur á sjóðum sem styðja félög í vexti

Helga bendir á að þar sem Crowberry fjárfestir í félögum …
Helga bendir á að þar sem Crowberry fjárfestir í félögum á alþjóðamarkaði sé mikilvægt að stíga varlega ölduna á meðan óvissa ríkir. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Helga Valfells, meðeigandi og einn af þremur stofnendum Crowberry Capital, sem fjárfestir í félögum á alþjóðamarkaði, segir helstu verkefnin snúi að því að finna bestu fjárfestingartækifærin ásamt því að styðja félögin í eignasafni Crowberry með virku stjórnarstarfi.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?

Mikil óvissa í alþjóðamálum er stærsta áskorunin um þessar mundir. Öll félög sem Crowberry fjárfestir í starfa á alþjóðamarkaði og þótt óvissa geti falið í sér tækifæri hefur hún augljóslega áhrif á starfsemina. Við erum að vinna með þessum félögum að stíga ölduna rétt svo að við komumst í gegnum þetta óvissuástand sem ríkir í heimsmálum.

Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi?

Ég fæ daglegan innblástur af því að hitta klára og skapandi frumkvöðla sem eru að þróa lausnir við stórum áskorunum. Það er einnig mjög gefandi að fylgjast með hugmynd þróast yfir í fyrirtæki sem fer síðan að skapa tekjur og störf og hagnað fyrir fyrstu fjárfesta.

Hver eru helstu verkefnin fram undan?

Í vinnunni snúa verkefnin að því að ávaxta vísisjóði Crowberry – þetta gerum við með því að finna bestu fjárfestingartækifærin, styðja félögin í eignasafninu með virku stjórnarstarfi og vinna að útgöngu úr fjárfestingum sem hafa vaxið. Persónulega verkefnið mitt er að þessa dagana er að ég er að reyna að skipuleggja ævintýralegt sumarfrí.

Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir?

Nýlega tók ég þátt í viðskiptasendinefnd Íslandsstofu til Bandaríkjanna ásamt íslenskum sjóðum og nýsköpunarfélögum. Þar var íslensk nýsköpun kynnt bandarískum fjárfestum. Eftirminnilegasti fyrirlesturinn sem ég hef sótt nýlega var í Niels Bohr Institute, þar sem fjallað var um þróun í skammtatölvutækni. Þar voru frábærir fyrirlesarar sem gátu einfaldað og útskýrt flókið viðfangsefni á mannamáli fyrir fjárfesta.

Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?

Mikill hluti af starfi mínu felst í að hitta frumkvöðla og alþjóðlega fjárfesta, allir þessir fundir veita innsýn í nýjustu strauma og stefnur í tækni. Ég les einnig mikið af greinum og skýrslum, sæki fagráðstefnur og síðast en ekki síst þá læri daglega af því klára samstarfsfólki sem ég vinn með.

Ég hef sótt ýmis námskeið í gegnum tíðina. Eitt þeirra var REAP-námskeiðið hjá MIT sem ég tók þátt í ásamt nokkrum öðrum Íslendingum og ég held að það hafi verið gagnlegast – þar fórum við í gegnum tveggja ára hraðal þar sem markmiðið var að byggja upp nýsköpunarumhverfi á Íslandi.

Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar?

The Hard Thing About Hard Things eftir Ben Horowitz er klassík. Bókin lýsir vel raunverulegum áskorunum frumkvöðla. Ég er einnig að klára Nexus eftir Yuval Noah Harari og mun hún örugglega hafa áhrif á hvernig maður hugar að og nálgast fjárfestingar í gervigreind.

Hugsarðu vel um heilsuna?

Ég hef verið heppin með heilsuna og reyni að borða hollan mat. Ég gæti örugglega hreyft mig meira en það situr svolítið á hakanum. Við hjónin förum reglulega í gönguferðir. Einstaka sinnum lyfti ég lóðum eða nota jógaapp. Fyrir andlega heilsu reyni ég að rækta þakklæti og ef ég fer að upplifa streitu þá reyni ég að setja vandamálið í samhengi – ef mannslíf er ekki í húfi þá á maður bara að anda rólega.

Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýtt starf?

Þó ég hafi áður sagt að mig langi til að verða geimfari, þá fyndist mér það eflaust of einmanalegt. Ég gæti vel hugsað mér að vera ljósmóðir eða fæðingarlæknir. Það að fá að taka á móti nýju lífi á hverjum degi hlýtur að vera ótrúlega gefandi.

Hvað myndir þú læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu?

Ef ég væri að bæta við mig nýrri gráðu þá held ég að ég myndi vilja læra eitthvað allt annað til að víkka sjóndeildarhringinn. Ég myndi vilja læra hönnun eða list. Sköpunargleðin verður sífellt mikilvægari í heimi gervigreindar. Einnig hef ég áhuga á erfðafræði og hvernig hlutir þróast í gegnum kynslóðir, það gæti líka verið forvitnilegt nám.

Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið?

Rekstrarumhverfi nýsköpunar á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum er almennt gott. Auðvelt hefur verið að fá fjármagn til að komast af stað með fyrirtæki en það er skortur á sjóðum sem styðja félög í vexti eftir að þau fara að skalast hratt. Það eru eflaust tækifæri fyrir einhvern að stofna vaxtarsjóð fyrir tæknifélög.

Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag?

Ég myndi setja alþjóðleg lög sem banna stríð. Of margir líða skort eða farast vegna deilna um landamæri. Það hlýtur að vera betri leið til að leysa úr ágreiningi á milli manna.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK