Horfur í heimshagkerfinu hafa versnað töluvert frá ársbyrjun, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).
Í skýrslu AGS, sem Landsbankinn bendir á í Hagsjá, kemur fram að nú sé spáð 2,8% hagvexti á heimsvísu árið 2025 og 3,0% árið 2026. Þetta er lækkun frá janúarspá AGS, þar sem gert var ráð fyrir 3,3% vexti bæði á þessu og næsta ári.
Horfur í Bandaríkjunum eru mun verri Nú er gert ráð fyrir 1,8% hagvexti þar á árinu 2025, samanborið við 2,7% í fyrri spá. Samdrátturinn endurspeglar aukna óvissu um aðgerðir stjórnvalda, vaxandi spennu í utanríkisviðskiptum og veikara efnahagsumhverfi.
Á evrusvæðinu eru horfurnar einnig verri. Gert er ráð fyrir 0,8% vexti á árinu 2025, en að vöxtur aukist í 1,2% árið 2026, studdur af auknum ríkisútgjöldum Þýskalands og vaxandi neyslu vegna betri kaupmáttar.
AGS bendir einnig á að verðbólguhorfur hafi versnað. Á heimsvísu er spáð 4,3% verðbólgu árið 2025 og 3,6% árið 2026. Sérstaklega er áberandi aukning í verðbólguspám fyrir Bretland og Bandaríkin, þar sem áhrif nýrra tolla og hækkanir á nauðsynjavörum eru farnar að gera vart við sig.
Markaðsaðilar gera ekki ráð fyrir vaxtalækkun á næsta fundi peningastefnunefndar bandaríska seðlabankans í maí, en líkurnar á lækkun í júní hafa aukist.
AGS varar við því að ef spennan í alþjóðaviðskiptum heldur áfram að aukast eða stjórnvöld bregðist með ófyrirsjáanlegum hætti, geti efnahagshorfur versnað enn frekar.