Ístak reisir Vaðölduver fyrir sjö milljarða

Hér sjást þau Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers, Kristín Linda …
Hér sjást þau Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Karl Andreassen, forstjóri Ístaks og Hjálmur Sigurðsson, framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Ístaki Ljósmynd/Aðsend

Landsvirkjun hefur samið við verktakafyrirtækið Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. 

Fram kemur í tilkynningu Landsvirkjunar að reiknað sé með að Ístak hefjist handa í núna í maí og verkinu ljúki sumarið 2027. 

Alls bárust sjö tilboð í verkið og var tilboð Ístaks metið hagstæðast að teknu tilliti til samtölu fjárhæðar þess og tilboðs í kolefniskostnað. 

Undir samninginn fellur bygging á járnbentum og steinsteyptum undirstöðum fyrir 28 vindmyllur, sem og gerð kranastæða fyrir uppsetningu vindmyllanna, ásamt allri jarðvinnu.

Þá reisir Ístak um 1000 m² safnstöð á svæðinu, steinsteypta byggingu sem nýtt verður fyrir ýmsan búnað og verkstæði. Safnstöðin verður tengd við tengivirki Landsnets. Þá þurfi að leggja töluvert af lögnum á svæðinu og grafa fyrir þeim, ganga frá malarplönum og vatns- og fráveitu. 

Vindmyllur gangsettar á næsta ári

Landsvirkjun samdi í nóvember sl. við þýska fyrirtækið Enercon um kaup, uppsetningu og rekstur á vindmyllunum 28, sem reistar verða í Vaðölduveri. Fyrri helmingur þeirra verður gangsettur á næsta ári og seinni hlutinn árið 2027.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK