Stefán ákærður fyrir 100 milljóna króna skattsvik

Veitingastaðurinn í Sjálandi stóð, að sögn saksóknara, í vanskilum á …
Veitingastaðurinn í Sjálandi stóð, að sögn saksóknara, í vanskilum á sköttum sem haldið var eftir af launum starfsmanna veitingastaðanna tveggja. mbl.is/Ásdís

Veitingamaðurinn Stefán Magnússon gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsisvist þar sem hann hefur verið ákærður fyrir 100 milljóna króna skattsvik. Stefán rak Reykjavík MEAT og veitingastaðinn í Sjálandi í Garðabæ þar til þau fóru á hausinn.

Þetta kemur fram í ákæru héraðssaksóknara sem mbl.is hefur undir hödnum. Stefáni er gefið að sök að standa ekki skil á opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna veitingastaðanna tveggja.

Héraðssaksóknari ákærir Stefán fyrir að hafa svikið ríflega 32 milljónir króna sem framkvæmdastjóri Steikar ehf. 2020-2022, og síðan svikið rúmlega 68 milljónir á árunum sem framkvæmdastjóri Gourmet ehf. á árunum 2021-2023.

Bæði félögin eru í dag gjaldþrota. 

Allt að 6 ára fangelsi

Málið varðar 262. gr. almennra hegningarlaga, að mati saksóknara, sem þýðir að Stefán gæti þurft að sæta allt að 6 ára fangelsi verði hann sakfelldur.

Steik ehf. rak veitingastaðinn Reykjavík MEAT fram að gjaldþroti 2021 og Gourmet ehf. hélt úti rekstri á veit­ingastaðnum Sjá­land í Garðabæ áður en félagið fór í þrot í október 2023.

Stefán rekur einnig félagið Brunch ehf., sem rak veit­ingastaðinn Mat­hús Garðabæj­ar áður fyrr en eig­enda­skipti urðu árið 2022 og tók fé­lagið MHG10 ehf. við rekstr­in­um. Brunch ehf. kemur ekki fyrir í ákærunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK