Embla Medical hagnast um 1,7 milljarða

Sveinn Sölvason forstjóri Embla Medical.
Sveinn Sölvason forstjóri Embla Medical. Eyþór Árnason

Hagnaður Emblu Medical, móðurfélag Össurar nam 12 milljónum dala, sem jafngildir um 1,7 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025.

Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri sem Embla birti í morgun. 

Á fyrsta ársfjórðungi nam sala félagsins 203 milljónum Bandríkjadala eða um 28 milljörðum króna.

„Salan var knúnin áfram af sterkum vexti í Asíu og Evrópu. Við héldum áfram að kynna nýju lífrænu- og gervigreindarhnéin okkar (Navii® og Icon®) við góðar undirtektir á helstu markaðssvæðum okkar. Bæði Navii® og Icon® eru frábærar nýjungar sem munu hjálpa okkur að ná til fleiri notenda," segir Sveinn Sölvason, forstjóri Össurar í uppgjörinu. 

Á fjórðungnum nam innri vöxtur á sölu stoðtækja 9%, en sala á spelkum og sjúklingaumönnun stóð í stað á frá fyrra ári. 

Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam 36 milljónum dala, sem jafngildir um 5 milljörðum króna. 

Við skiluðum sterkum rekstarhagnaði á fyrsta ársfjórðungi og var EBITDA framlegð 18% af veltu, sem er 1% hækkun frá sama tímabili í fyrra. Betri framlegð var drifin áfram af auknu hagkvæmni í framleiðslu ásamt aðhaldi í rekstri,“ segir Sveinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK