Icelandair tapaði 44 milljónum dala eða um 6,1 milljarði króna á fyrsta fjórðungi þessa árs samanborið við 59,4 milljóna dala tap á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.
Heildartekjur flugfélagsins jukust um 11% og námu 39,6 milljörðum króna (286 milljónum USD). Afkoma eftir skatta batnaði um 2,1 milljarð króna milli ára (15,3 milljónir USD)
EBIT afkoma batnaði um 917 milljónir króna (6,6 milljónir USD), EBIT á 1. ársfjórðungi neikvætt um 8,6 milljarða króna (62,3 milljónir USD).
Einingakostnaður lækkaði um 3% og einingatekjur jukust um 1% milli ára.
Sjóðstreymi frá rekstri 28,3 milljarðar króna (205 milljónir USD), jókst um 8 milljarða króna (58 milljónir USD).
Eigið fé félagsins í lok fjórðungsins nam 241 milljón bandaríkjadölum og var eiginfjárhlutfallið 13%.
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair í tilkynningu að afkoma fyrsta ársfjórðungs hafi verið betri í öllum rekstrareiningum.
„Það er ánægjulegt að sjá einingakostnað halda áfram að lækka þrátt fyrir verðbólgu og kostnaðarhækkanir í takt við áherslu okkar á að bæta rekstur og afkomu félagsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs höfðum við ráðist í hagræðingaraðgerðir sem munu skila yfir 40 milljónum dala á ársgrundvelli og gerum við ráð fyrir að fjárhagslegur ávinningur verði samtals 70 milljónir dala á ársgrundvelli í lok árs 2025. Við munum ekki stoppa þar og eru fjölmörg frekari umbótaverkefni í pípunum. Ég vil þakka starfsfólki okkar fyrir frábæra frammistöðu á síðustu mánuðum og viðskiptavinum okkar fyrir að velja Icelandair. Ég er sannfærður um að áhersla okkar á hagræðingu í rekstri, til viðbótar við sveigjanleika til að aðlagast síbreytilegum markaðsaðstæðum, geri okkur vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem framundan eru, bæta arðsemi og skapa virði fyrir hluthafa og íslenskt samfélag til lengri tíma,“ er haft eftir Boga Nils.