Lauf Cycles lýkur 500 milljóna fjármögnun

Íslenski reiðhjólaframleiðandinn Lauf Cycles hefur lokið við 500 milljón króna …
Íslenski reiðhjólaframleiðandinn Lauf Cycles hefur lokið við 500 milljón króna fjármögnunarlotu. Ljósmynd/Aðsend

Íslenski reiðhjólaframleiðandinn Lauf Cycles hefur lokið tæplega 500 milljón króna fjármögnunarlotu.

Í tilkynningu kemur fram að Kvika fjárfestingabanki veitti ráðgjöf við hlutafjáraukninguna, sem leidd var af hluthöfum félagsins, ásamt aðkomu nýrra aðila. 

„Við erum mjög ánægð með að hafa náð þessum áfanga og þakklát fyrir traust fjárfesta okkar. Fjármögnunin gerir okkur kleift að hraða þróun nýrra vara, auka framleiðslugetu og sækja af enn meiri krafti inn á erlenda markaði. Þetta eru spennandi tímar," segir Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri Lauf Cycles í tilkynningunni. 

Samsetningarverksmiðja í Bandaríkjunum

Lauf hefur skapað sér sess á alþjóðlegum markaði fyrir nýsköpun í hjólahönnun, þá sérstaklega á sviði malar- og götuhjóla og nýlega kynnti félagið sitt fyrsta fjallahjól. 

Undanfarin þrjú ár hefur Lauf Cycles unnið að uppsetningu á öflugri samsetningarverksmiðju í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum. Verksmiðjan færir félaginu aukið rekstrarhagræði og öryggi, sérstaklega á þeim umbrotstímum sem nú ríkir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK