Tap eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2025 hjá flugfélaginu Play nam 26,8 milljónum dala eða sem nemur 3,7 milljörðum króna, samanborið við 27,2 milljónir dala árið áður. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Rekstrarniðurstaða (EBIT) var neikvæð um 21,7 milljónir dala á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við neikvæðar 21,3 milljónir dala á sama tímabili 2024.
Heildartekjur PLAY á fyrsta ársfjórðungi 2025 voru 46,4 milljónir bandaríkjadala, samanborið við 54,4 milljónir dala á sama tímabili 2024.
Tekjur á hvern framboðinn sætiskílómetra (RASK) á fyrsta ársfjórðungi 2025 voru 4,10 sent, samanborið við 4,24 sent á sama tíma 2024. Meðaltekjur á hvern farþega hækkuðu um 1,2%, úr 152 USD í Q1 2024 í 153 USD í Q1 2025. Þó að sætanýting hafi lækkað um 4,6 prósentustig milli ára, héldu meðaltekjur uppi stöðugu RASK.
Kostnaður á hvern framboðinn sætiskílómetra (CASK) á fyrsta ársfjórðungi 2025 var 6,06 bandarísk sent, samanborið við 5,91 sent á sama tímabili 2024. Kostnaður á hvern framboðinn sætiskílómetra að undanskyldu eldsneyti (Ex-Fuel CASK) var 4,43 sent árið 2025, samanborið við 4,36 sent árið 2024 (með leiðréttingum í árslok 2024).
Eigið fé félagsins var neikvætt um 60,4 milljónir dala sem nemur um 8 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall félagsins er nú -16,6% en var -6,1% í lok sama ársfjórðungs í fyrra.
Handbært fé PLAY í lok fyrsta ársfjórðungs 2025 nam 21,1 milljón dali, sem er aukning um 3,9 milljónir dala miðað við 17,2 milljónir dala í lok fyrsta ársfjórðungs 2024. Handbært fé í árslok 2024 nam 23,6 milljónum dala.
„Lausafjárstaðan er sterkari samanborið við fyrra ár, sem endurspeglar betri rekstrarhorfur. Félagið leitar ávallt leiða til að tryggja lausafjárstöðu félagsins sem best, meðal annars með hagræðingu á veltufé en ef markaðsaðstæður breytast kemur til greina að auka hlutafé í félaginu eða dótturfélagi þess," segir í uppgjörstilkynningu félagsins.
PLAY verður með sjö vélar yfir háannatíma sumarsins, þar með talið eina aukaflugvél sem verður leigð til skamms tíma. Nýir sólarlandaáfangastaðir í sumar eru meðal annars Faro í Portúgal og Antalya í Tyrklandi.
Fjórar af tíu flugvélum fara í leiguverkefni fyrir SkyUp Malta Airlines frá og með vori/sumri 2025. Samningurinn gildir út árið 2027. SkyUp Malta tilheyrir JoinUp Group, sem á uppruna sinn sem ferðaskrifstofa í Úkraínu og rekur nú bæði flugfélag á Möltu og ferðaskrifstofur víða í Austur-Evrópu.
Haft er eftir Einari Erni Ólafssyni forstjóra Play í uppgjörstilkynningu að hann sé mjög ánægður með þann árangur sem félagið hafi náð á fyrsta fjórðungi 2025.
„Eins og við höfum áður greint frá hvílir meginþungi viðskiptalíkans okkar á tveimur lykilstoðum: flugi til sólarlanda og að tryggja arðbær leiguverkefni fyrir þann hluta flota okkar sem ekki nýtist í okkar framleiðslu. Ég er stoltur af því að segja að við erum að skila góðum árangri á báðum þessum sviðum. Það sem skiptir mestu máli er að horfur í rekstrinum eru jákvæðar og við förum inn í sumarið með öflugt, vel skipulagt leiðakerfi og jafnvægi í nýtingu flota, sem gerir okkur kleift að styrkja fjárhagsstöðu okkar. Auðvitað mun það krefjast áframhaldandi einbeitingar, vinnuframlags og aðlögunarhæfni hjá okkur öllum í PLAY. Breytingar eru aldrei auðveldar, en þær eru nauðsynlegar og við höfum sýnt að við höfum bæði hæfileika og staðfestu til að ná árangri. Ég er fullkomlega sannfærður um að við munum, saman, halda áfram á þessari jákvæðu braut, yfirstíga þær áskoranir sem kunna að verða á leið okkar og ná markmiðum okkar,“ er haft eftir Einari Erni.