Skagi skilaði tapi að fjárhæð 1.353 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 136 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu félagsins.
Tap félagsins má fyrst og fremst rekja til neikvæðra fjárfestingatekna og fjármagnsliða, sem drógu samanlagða afkomu niður um rúmar 1.000 milljónir króna. Fjárfestingatekjur voru neikvæðar um 497 milljónir króna, aðallega vegna lækkunar á verði skráðra hlutabréfa.
Grunnrekstur samstæðunnar var þó sterkur. Tekjur af tryggingastarfsemi jukust um 10,9% á milli ára, og samsett hlutfall batnaði um 2,9 prósentustig niður í 100,7%. Vátryggingasamningar skiluðu neikvæðri afkomu að fjárhæð 51 milljón króna, en batnaði þó um 192 milljónir króna milli ára. Árstíðarbundinn tjónaþungi hafði áhrif á niðurstöðu tryggingarekstrar, en þróunin er í takti við áætlanir.
Hreinar tekjur í fjármálastarfsemi námu 780 milljónum króna og jukust um 25% frá fyrra ári. Afkoma fjármálastarfsemi fyrir skatta var hins vegar neikvæð um 34 milljónir króna, að hluta til vegna sameiningarkostnaðar við samruna Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, auk sameiningar SIV eignastýringar og ÍV sjóða.
Eignir í stýringu námu í lok fjórðungs 225 milljörðum króna, en lækkuðu um 2 milljarða milli fjórðunga vegna sveiflna á eignamörkuðum. Eigið fé samstæðunnar var 20,9 milljarðar króna og gjaldþol mældist 1,19, þrátt fyrir arðgreiðslu og verðlækkun í hlutabréfasafni.
Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, segir í tilkynningu að krefjandi markaðsaðstæður hafi haft áhrif á fjárfestingatekjur, en grunnrekstur samstæðunnar sé áfram á traustum grunni. Hann leggur áherslu á að rekstrarhorfur fyrir árið 2025 séu óbreyttar. Gert er ráð fyrir að samsett hlutfall í tryggingarekstri verði á bilinu 93–96%, hreinar fjármálatekjur verði á bilinu 2.900–3.500 milljónir króna og árleg ávöxtun fjárfestingaeigna verði 10%, miðað við forsendur ársbyrjunar.