Rafbílaframleiðandinn Tesla virðist standa frammi fyrir erfiðum áskorunum. Sala hefur dregist saman, hagnaður minnkar hratt og viðskiptavinir og fjárfestar hafa fjarlægst fyrirtækið.
Framleiðandinn greindi frá verulegri lækkun á hagnaði og tekjum á fyrsta ársfjórðungi 2025. Hagnaður dróst þar saman um 71% milli ára og nam 409 milljónum dollara. Heildartekjur lækkuðu um 9% og námu 19,3 milljörðum dollara. Tekjur lækkuðu um 20% og námu 13,9 milljörðum dollara.
Þrátt fyrir þessa lækkun hélt fyrirtækið áfram að skila hagnaði að hluta til vegna sölu á mengunarheimildum að verðmæti 595 milljónir dollara.
CNN hefur vandræði Tesla að umfjöllunarefni og þar er bent á að ef stefna Trump-stjórnarinnar nái fram að ganga, þar sem fyrirhugað er að afnema þær ívilnanir sem styðja við rafbílamarkaðinn, muni þessi töfralausn fyrir reksturinn að selja heimildirnar ekki ganga upp aftur.
Samtímis hefur samkeppni aukist á rafbílamarkaði, sérstaklega frá Kína þar sem BYD er að fara fram úr Tesla sem stærsti rafbílaframleiðandi heims. Sala á Tesla hefur einnig dregist saman í Evrópu. Þar að auki hefur umdeild stjórnmálaþátttaka Musks, meðal annars opinber stuðningur við öfgahægriflokka eins og AfD í Þýskalandi, haft neikvæð áhrif á ímynd fyrirtækisins, samkvæmt umfjöllun CNN.
Elon Musk hefur einnig fengið á sig mikla gagnrýni fyrir þátttöku í hagræðingaraðgerðum Bandaríkjastjórnar (DOGE) þar sem forstjórinn hefur á tíðum frekar birst sem trúður í anda uppistands en leiðandi forstjóri stórfyrirtækja. Þessi þátttaka hefur leitt til neikvæðra viðbragða frá neytendum og fjárfestum, sem hefur haft áhrif á ímynd fyrirtækisins og eftirspurn.
Musk hefur lýst því yfir að framtíð Tesla liggi í svokölluðum sjálfkeyrandi „robotaxis“ eða leigubílum sem taka á í gagnið í Austin í Texas síðar á árinu, samhliða enn ódýrari rafbílum sem ætlunin er að kynna strax á þessu ári. Líklega eru það bílar sem eru ódýrari útgáfur af bæði Model Y og Model 3 frekar en nýir frá grunni, þótt það sé óljóst. Bandaríska samgönguráðuneytið gaf nýlega út ramma sem miðar að því að ryðja úr vegi reglugerðarhindrunum fyrir sjálfkeyrandi farartæki, og hækkuðu hlutabréf í Tesla í kjölfarið.
Sérfræðingar vara við of mikilli bjartsýni. Samkvæmt CNN eru sjálfkeyrandi farartæki enn langt undan. Musk hefur ítrekað sett fram of bjartsýnar tímasetningar um þróun sjálfkeyrandi tækni, tímasetningar sem hafa á engan hátt staðist.
Musk sjálfur hafnar áhyggjum fjárfesta og lét meðal annars þau orð falla á uppgjörsfundi að félagið hefði gengið í gegnum margar krísur í gegnum árin og oft verið komið á heljarþröm, en sú sé ekki raunin nú. Forstjórinn talaði um töluverðar áskoranir í rekstri en var áfram mjög bjartsýnn um framtíð fyrirtækisins.
Tesla stendur sannarlega frammi fyrir fjölmörgum áskorunum, þar á meðal minnkandi hagnaði, aukinni samkeppni og neikvæðum áhrifum af pólitískri þátttöku forstjóra síns. Framtíð fyrirtækisins mun ráðast af getu hans til að takast á við þessar áskoranir og endurheimta traust neytenda og fjárfesta. Fyrsta skrefið er líklega að fá forstjórann til að einbeita sér að rekstrinum og hætta verkefnum eins og DOGE og staðfesti Musk það á uppgjörsfundinum.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.