Ársverðbólga mældist 4,2% í apríl samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands og hækkaði úr 3,8% frá í mars. Þetta er hærra en spá Landsbankans, sem hafði gert ráð fyrir 4,0% verðbólgu.
Í Hagsjá Landsbankans kemur fram að hækkunin skýrist meðal annars af meiri hækkun á reiknaðri húsaleigu og matvöruverði en vænst var. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu einnig mikið, eða um 20,4% á milli mánaða.
Framlag innfluttra vara til verðbólgu jókst, einkum vegna hækkana á raftækjum, tómstundavörum og fatnaði.
Landsbankinn spáir nú að verðbólga verði 3,9% í maí og júní, og 3,7% í júlí. Þar að auki telur bankinn minni líkur á vaxtalækkun í næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans 21. maí, þar sem einkaneysla og húsnæðisverð halda áfram að hækka.