Verðbólgan mælist 4,2%

Verðbólgan eykst frá síðasta mánuði.
Verðbólgan eykst frá síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 4,2%.

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2025, er 649,7 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,93% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 522,0 stig og hækkar um 0,93% frá mars 2025 að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

Þá segir að verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,12%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,1% (0,22%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu einnig um 20,4% (0,40%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK