Arðsemi eiginfjár Landsbankans 10%

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans Ljósmynd/Aðsend

Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2025 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 7,2 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 10,0% samanborið við 9,3% á sama tímabili árið áður.

Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna nam 2,7%, samanborið við 2,9% á sama tímabili 2024. Vaxtamunur heimila var 2,1% og er hann sá sami og árið 2024.
Hreinar vaxtatekjur voru 14,8 milljarðar króna og hreinar þjónustutekjur voru 3,0 milljarðar króna. Báðir liðir hækka á milli ára.

Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 23,6% en fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir heildarkröfu um 20,4% eiginfjárgrunn.

Á aðalfundi bankans þann 19. mars 2025 var samþykkt að greiða 18,9 milljarða króna í arð til hluthafa. Heildararðgreiðslur bankans frá 2013 munu því nema 210,6 milljörðum króna í lok árs.

Haft er eftir Lilju Björk Einarsdóttur bankastjóra Landsbankans í tilkynningu að afkoma bankans á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi verið traust.

„Uppgjörið nú er það fyrsta síðan bankinn tók við rekstri TM og samvinnan fer vel af stað. Óróleiki á mörkuðum og óvissa í alþjóðamálum setti mark sitt á fjórðunginn með ýmsum hætti. Hægt hefur á útlánavexti, bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum, sem sum hver bíða átekta með fjárfestingar og aðrar ákvarðanir. Við þessar aðstæður er gott að vita til þess að almennt er fjárhagsstaða fyrirtækja og einstaklinga sterk. Landsbankinn býður áfram mjög samkeppnishæfa vexti bæði í innlánum og útlánum. Traustur rekstur bankans gerir okkur kleift að viðhalda 2,1% vaxtamun heimila en skila jafnframt ásættanlegri arðsemi í rekstri bankans og greiða hluthöfum jafnan arð. Bankinn er með ánægðustu viðskiptavini meðal viðskiptabankanna. Árangur bankans er góður og starfsfólk leggur sig fram við að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Þrátt fyrir krefjandi ytra umhverfi er bankinn í sterkri stöðu til að styðja við íslenskt samfélag,“ er haft eftir Lilju í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK