Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova er gestur í viðskiptahluta Dagmála þessa vikuna. Þar ræðir hún meðal annars rekstur félagsins, kaup Nova á 20% hlut í DineOut og fleira.
Spurð hvort Nova horfi til þess að byggja upp efnisveitur líkt og Síminn og Sýn segir Margrét að slíkt sé ekki á döfinni.
„Við höfum verið mjög skýr með það, og ég ætla ekki að gagnrýna samkeppnisaðila okkar, en við höfum sagt að þetta sé ólíkt viðskiptamódel og það þurfa ekki allir að vera eins og við. Þetta viðskiptamódel sem við höfum byggt á hefur virkað vel fyrir okkur. En aftur segir það líka að þú þarft kannski ekki alveg að elta allt það sem hinir eru að fara í og við höfum kosið að vera ekki í efnisveitum,“ segir Margrét.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér: