Bílasala á Íslandi hefur tekið við sér á þessu ári eftir erfitt tímabil í fyrra. Fyrstu fjórir mánuðir ársins sýna rúmlega 41,3% aukningu í nýskráningum fólksbíla frá sama tíma í fyrra. Sérstaklega hefur sala til einstaklinga aukist, eða um 51,4%, samkvæmt upplýsingum frá Jóni Trausta Ólafssyni forstjóra Öskju.
Askja, sem hefur umboð fyrir Kia, Mercedes-Benz, Honda og Smart, fagnar í ár 20 ára afmæli sínu og hefur aldrei áður haft jafnsterka stöðu á markaðnum. Kia er nú söluhæsta bílamerkið á Íslandi, með um 19% markaðshlutdeild, og rafbílar eru í forgrunni í öllum nýjum viðskiptum.
„Við höfum alltaf einbeitt okkur að því að veita góða þjónustu, byggja upp sterka liðsheild og bjóða traust vörumerki fremur en að elta markaðshlutdeildina,“ segir Jón Trausti. „Að þessi árangur skili sér nú sýnir styrk vörumerkjanna sem við höfum byggt upp.“
Að sögn Jóns Trausta eru orkuskipti nú komin á fullan skrið á Íslandi. Nú þegar eru um 60% nýrra bíla sem einstaklingar kaupa rafbílar og aðeins innan við 8% nýrra bíla sem ganga eingöngu fyrir bensíni eða dísilolíu.
„Það sem við sjáum núna er að markaðurinn sjálfur – bæði framleiðendur og kaupendur – eru að stýra þróuninni í átt að rafvæðingu,“ segir hann. „Ég tel líklegt að innan eins eða tveggja ára muni líða mánuðir þar sem enginn bensín- eða díselbíll verður seldur nýr á Íslandi.“
Jón Trausti bendir á að framleiðslukostnaður rafbíla sé nú orðinn sambærilegur við hefðbundna bíla og kostirnir fleiri en nokkru sinni fyrr. „Við fáum ný módel hraðar en áður, með meiri drægni og á hagstæðara verði,“ segir hann.
Þrátt fyrir rugling á fyrstu stigum nýs stuðningskerfis, þar sem 900.000 króna afsláttur af rafbílakaupum leysti af hólmi eldri virðisaukaskattsívilnanir, telur Jón Trausti að Ísland hafi sterka samkeppnisstöðu þegar kemur að orkuskiptum.
„Vörugjöld á rafbílum eru aðeins 5% en mengandi bílar bera allt að 65% gjöld,“ segir hann. „Þetta er skýr hvati til orkuskipta og hefur styrkt stöðu rafbíla enn frekar.“
Jón Trausti tekur sérstaklega fram mikilvægi þess að halda áfram að byggja upp hleðsluinnviði um land allt. „Ferðamenn og innlendir notendur þurfa að geta gengið að hleðslu vísri, hvort sem er við hótel, flugvelli eða fjölfarna ferðamannastaði.“
Kia heldur áfram að koma með nýjungar á markaðinn. Rafbíllinn Kia EV3, sem var nýverið útnefndur „World Car of the Year 2025“, hefur þegar slegið í gegn á Íslandi. Bíllinn býður yfir 600 km drægni og endurspeglar þann kraft sem nú er í framþróun rafbílamarkaðarins.
„Í dag er raunhæft fyrir flesta að eiga rafbíl sem getur ferðast milli Reykjavíkur og Akureyrar á einni hleðslu. Þetta var áður mikil hindrun fyrir marga kaupendur,“ segir Jón Trausti.
Á næstu mánuðum mun Kia bæta við fleiri nýjum gerðum eins og EV4 og EV5, auk sérhæfðra fólksflutninga- og sendibíla. Askja væntir aukins vaxtar með þessari fjölgun valkosta.
Bílaleigumarkaðurinn er einnig að breytast ört, að sögn Jóns Trausta. Askja hefur frá upphafi lagt áherslu á að vinna með öflugustu bílaleigum landsins og sér þær nú taka sífellt stærri skref yfir í rafvæðingu.
„Við höfum haldið ákveðnu jafnvægi milli einstaklings-, fyrirtækja- og bílaleigusölu. Þetta hefur styrkt endursölumöguleika og aukið sýnileika okkar vörumerkja,“ segir hann.
Rafbílar verða æ vinsælli í flota bílaleigna, sérstaklega með styrkingu hleðsluinnviða. Með hröðu endurnýjunarferli geta bílaleigur skilað góðum bílum inn á eftirmarkaðinn, þar sem eftirspurnin eftir notuðum Kia-bílum með sjö ára ábyrgð er mikil.
Askja rekur einnig öfluga sölu á lúxusbílum frá Mercedes-Benz, sem áfram heldur sterkri stöðu á íslenskum markaði. Sérstaklega hefur gengið vel að kynna nýja rafbíla frá þýska framleiðandanum.
„Við höfum selt hátt í 20 eintök af G-Class-rafbílum frá Mercedes á þessu ári,“ segir Jón Trausti. „Næsta árið munum við fá fjórar nýjar gerðir rafbíla frá Mercedes-Benz með allt að 800 km drægni, sem hentar afar vel fyrir íslenskar aðstæður.“
Hann bendir á að Ísland, með hátt hlutfall jeppa og rafbíla, sé sérstakur markaður í alþjóðlegu samhengi fyrir Mercedes-Benz.
Jón Trausti sér fram á að Ísland verði á næstu fimm árum eitt af fyrstu löndum heims þar sem nýskráning jarðefnaeldsneytisbíla hverfur nánast alveg.
„Ísland er með alla þá orku sem við þurfum til að knýja allar samgöngur innanlands. Það verður gríðarlegur gjaldeyrissparnaður fyrir þjóðina að þurfa ekki að flytja inn bensín og dísel í sama mæli,“ segir hann.
Eins og stendur telur hann að íslenski bílamarkaðurinn standi vel miðað við önnur Evrópulönd, sérstaklega hvað varðar hlutdeild rafbíla meðal einstaklinga og hraða uppbyggingu nýrrar tækni.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.